Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

10 dagar, eða eitthvað svoleiðis.

Nú er alveg að koma að þessu.  Allar okkar veraldlegar eignir eru komnar í gám og eru núna um borð í skipi á leið til Danmerkur.  Það er allt tómt hérna og núna bíðum við bara eftir því að 7 júlí komi.  Þá um kvöldið er flugið til Danmerkur.  Svo núna eru bara 10 dagar eftir.

Það er búið að ganga mikið á undanfarna viku.  Það er meira en að segja það að pakka öllu niður og setja í gám.  Þetta er miklu erfiðara heldur en venjulegir flutningar.  Og svo er að raða í gáminn.  Það er sko vandasamt.  það verður að vera agúrat rétt svo ekkert færist til, því gámurinn er sko á mikilli ferð.  Ég er svolítið hrædd um að það verði nú eitthvað brotið þegar út verði komið.  En það verður bara að hafa það.  Þetta eru bara hlutir. Smile

Annars er ég orðin það spennt að svefn er svona frekar hugtak en staðreynd þessa dagana.   Alla vega er ég ekki búin að sofa mikið á næturnar undanfarið.  Það er svosem ekki skrítið að spennan sé mikil.  Það er ekki á hverjum degi sem maður flytur með alla fjölskylduna úr landi.  En Þrátt fyrir að ég þjáist af svefnleysi vegna spenings er svo ekki að fara hjá krökkunum.  Mér finnst þau vera alveg rosalega róleg út af þessu öllu saman.  Sem er auðvitað frábært.  þetta er bara eitthvað sem er að gerast og bara allt í lagi með það.  Reyndar er Pétur Geir frekar fúll út af því að vera ekki  búinn að læra dönsku meira.  Skammast í mér að hafa ekki byrjað að kenna honum dönsku fyrir sex ára aldur þar sem börn eigi auðveldara að læra nýtt tungumál eftir því sem þau séu yngri.  Svo líkt Pétri Geir að pæla í einhverju svona.  Annars er hann bara sáttur við að vera að fara og ég get ekki merkt neinn kvíða hjá honum.  Ekki heldur hjá stelpunum.  En ég veit að þetta mun ekki verða auðvelt fyrir þau en ég veit hvað þau geta og hvað þau eru dugleg og klár svo ég hef ekki áhyggjur af þeim.  Þrátt fyrir að þau fari í skóla þar sem eru bara danskir krakkar.  Og enginn móttökubekkur.  En Þau eru klár og þau eiga eftir að spjara sig.

Annars hef ég meiri áhyggjur af sjálfri mér hvað dönskuna varðar.  Vá, að fara að læra dönsku núna, það verður svolítið erfitt.  Ég ætlaði nefnilega aldrei að flytja til Norðurlandanna og aldrei til Danmerkur, en svona er það nú.  En ég er alveg ákveðin í því að læra dönskuna og ég ætla að standa mig vel í því.  Vilji er allt sem þarf.

En sem sé þetta er staðan núna: Bið. 

Annars tók ég eftir því þegar ég las þetta yfir að ég minntist ekkert á Arnþór.  En hann er líka mjög spenntur yfir þessu öllu.  En hann er en að vinna og hættir ekki fyrr en í næstu viku.  Hann er frekar þreyttur eftir þessa pökkunartörn þar sem hann þurfti að fara að bera út í gám um leið og hann kom heim.  En hann fær góðan tíma til að slaka á þegar við erum búin að ganga frá öllu úti.  En eins og ég bíður hann bara eftir 7 júli.

Stella


Fjölskyldan

Svo ég segi ykkur svolítið um okkur þá erum við fimm (5) í fjölskyldunni.  Ég, (Stella), Arnþór, Pétur Geir (elsta barnið fæddur '95) Sigurbjörg Unnur ( elsta stelpan fædd '96) og Karen Guðlaug (litla barnið fædd '97).  Við Arnþór erum svo gömul að það tekur því ekk að segja hvenær við erum fædd.  Ok, ég er fædd '69 og er því 39 ára og Arnþór er fæddur '68 og var fertugur 26 mars.  Ég útskrifaðist sem stúdent úr Borgarholtsskóla núna um áramótin og ég stóð mig frábærlega.  Fékk verðlaun fyrir frábæran árangur á Verslunarbraut.  Arnþór kláraði Húsasmiðameistarann um áramótin.  Svo seinasta ár var stórt fyrir okkur bæði.  Börnin okkar stækkuðu líka umtalstvert seinasta ár.  Pétur Geir varð stærri enn ég, sem er ekki erfitt en.... samt:).  Yngsta barnið okkar varð 10 ára og elsta stelpan okkar 11 ára, svo þetta var frekar merkilegt ár, 2007.

En þetta ár virðist ætla að verða bara enn betra.  Pétur Geir varð 13 ára, unglingur og mjög svo leiðinlegur.  Sigurbjörg Unnur og Karen Guðlaug ja, þeim dauðlangar að verða unlingar líka en því miður, aðeins of ungar, en maskarinn er samt kominn í veskið með varalitnum og glossinu. :)          Svo í Janúar, bara svona upp úr þurru og allt í einu, ákváðum við Arnþór að skella okkur til Danmerkur í nám.  I mean, come on, we are no teenagers any more.  En við ákváðum að skella okkur, ef ekki núna þá hvenær?  Arnþór sótti um í Vitus Bering í Horsens í Byggingafræði og fékk inngöngu, auðvitað!!!  Ég aftur á móti ákvað að skella mér í viðskiptafræði í Århus Universitet.  En ég fæ ekki svar frá þeim fyrr en 30 júlí.  Sem er ekkert smávegis mega hallærislegt.  En ég hef samt fulla trú á því að það gangi eftir.

Þar sem Arnþór fer í skóla í Horsens en ég í Århusum þá leituðum við að húsnæði einhvers staðar þar á milli.  Hörning varð fyrir valinu.  Þar leigðum við raðhús, sem er splúnku nýtt og allt fylgir.  það er að segja þvottavél og þurrkari, ísskápur og uppþvottavél.  Allt er hvítmálað og parket á gólfum, flísalagt bað, hvít eldhúsinnrétting og keramik borðblötur og gluggakistur.  Krakkarnir fá öll sér herbergi, svo þetta er fullkomin stærð fyrir okkur.  Um 135 fm, svona nokkurn vegin, það er samt engin geymsla nema svona útigeymsla, þannig að við þurfum að koma geymsludóti fyrir hér heima.  En so what?

Krakkarnir munu fara í danskan skóla sem heitir Bakkegaardskolen.  Þar eru bara danskir nemendur.  Sem okkur finnst frábært.  Það má segja að þeim verði hent í djúpu laugina og svo athugað hvort þau muni geta synd. :)  Það mun svo koma í ljós hvernig þeim mun ganga.  Þessi skóli er ekki með móttökubekk en það er annar skóli ekki langt frá sem er með móttökubekk og ef það mun verða erfitt fyrir þau þá munu þau verða færð yfir í þann skóla.  En þetta eru klárir krakkar sem við eigum og við höfum fulla trú á því að þeim muni ganga vel.

En það sem er komið á hreint núna er að við munum frá gám í næstu viku og 6 júlí munum við fara til Danmerkur með næturflugi.  7 júlí komum við því til Danmerkur.  Og þá byrjar ævintýrið.

Meira seinna.

Stella

 


Flytjum til Danmerkur

Eftir rúmar 3 vikur munum við flytja til Danmerkur.  Við Arnþór erum bæði að fara í skóla og krakkarnir líka, auðvitað.  Við erum búin að leigja húsnæði í Hörning sem er ekki langt frá Århusum.   Við ætlum að skrá ýmislegt hérna á blogið um veru okkar í Danmörku og hvernig við munum hafa það hérna.  Svo endilega fylgist með okkur og sendið okkur kveðjur. 

Kv. Stella


« Fyrri síða

Um bloggið

Arnþór, Stella og Börn í Danmörku

Höfundur

Stella, Arnþór og Börn
Stella, Arnþór og Börn
Við erum að flytja til Danmerkur þar sem við Arnþór erum að fara í nám. Þetta er svo fjölskyldan á Íslandi geti fylgst með því sem er að gerast hjá okkur

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • CIMG7154
  • CIMG7153
  • CIMG7171
  • CIMG7148
  • CIMG7146

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 526

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband