Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Búin að taka út Þýskaland

Við gerðum það víðeist um helgina, við skruppum til þýskalands á þessari ágætu frönsku bifreið af Peugeot gerð, á verði sem kom á óvart.  Við skruppum til Þýskalands til að athuga verð og gæði hjá þarlendum nýlenduvöruverslunum.  Það kom okkur ekki á óvart að öl og gos var töluvert ódýrara hjá dolla frænda heldur en hjá frændum vorum dönum.  Og ekki kom það á óvart að börnun þurftu að sitja á kössum af kóki og bjór til að komast heim til sín.  Foreldrarnir sátu sponskir fram í og létu sig hlakka til kvöldsins að smakka á góssi dagsins.  Við skruppum nebblinlega í skandineivían park og létum greypar sópa um hillur og handraða.  Aumingja bíllinn var farinn að kvarta þegar dekkinn voru farin að skrapa brettin að innan.  Það er víst töluvert ódýrara að bregða sér suður fyrir landamærin og fá sér öl og gos heldur en að versla það af innfæddum  hér.  Þar sem bíllinn okkar var ekki með krók, þá gátu við ekki tekið með okkur kerru, eins og venjan er víst hér.  Þess í stað þurftu krakkarnir að sitja á royal export og nicolina lemonade og láta sér það að góðu lynda.  Þegar við höfðum verlsað nægu okkar í skandineivían park, þá skruppum við aðeins til flensborgar til þess eins að geta sagst hafa farið til Þýskalands.  Það var mjög gaman að koma þangað þar sem það var meira svona evrópulegra heldur en miðborg HÖRNING.  Aðeins meiri heimsborgarabragur á flensborg, eða þannig sko!!  Hins vegar þurfum við að fara þangað á MISSJÓN, það er að fara þangað niður eftir og vera búin að ákveða að kíkja á ákveðna staði.  Þangað til....Njótið vel.

Kveðja, Arnþór


Afmælisbíllinn

Jæja, þá er komið að því.  Ég hélt að ég myndi ALDREI leggjast í þetta blogg, en svo bregðast krossbönd sem önnur tré.  Við erum búin að vera bíllaus í nokkra daga og það er ekkert sniðugt við það.  Til að komast í strætó eða lest þurfum við að labba í kringum hverfið, framhjá akrinum, gegnum skóginn, hlaupa fram hjá elliheimilinu (svo að elli-kelling nái manni ekki), og labba svo enn lengra....þig skiljið hvað ég er að fara, fjandanum lengra í strætó eða lest.  Nema hvað að ég var orðinn SOLDIÐ þreyttur á þessu rölti/hlaupum í 30 stiga hita þannig að það var ákveðið að finna bifreið handa okkur letingjunum.  Við feðgarnir lögðum land undir fót og fórum til Egebjerg [íbjerg] í strætó, en þar átti að vera bílasala, kunn fyrir íslendingaást og trúfestu.  Pétur Geir var að niðurlotum kominn þegar strætóstoppustöðinni var náð og náði varla andanum þegar blár og fagur strætó númer 107 renndi í hlað og við stigum um borð.  Eftir klukkustundarlangan strætótúr komum við til Egebjerg [íbjerg] en við höfðum ekki hugmynd hvar bílasalan var eða hvar í bænum við vorum.  Það eina sem við vissum var að það var heitt og sólríkt.  Við löbbuðum af stað út í bláinn og eftir að hafa gengið fram hjá skólanum í bænum, barnaheimili og kaupfélaginu þá blasti við okkur bílasalan í allri sinni dýrð.  Að dönskum sið var bílasala lokuð í hádeginu (n.b. við lögðum af stað að heiman upp úr klukkan 10) svo ég hringdi í Hall bjargvætt.  Þá kom í ljós að hann bjó steinsnar í burtu og var kominn til okkar eftir augnablik.  Við fengum augastað á svartan franskan eðalvagn af peougot gerð á verði sem kom á óvart.  Þegar bílasalinn kom aftur þá fórum við í smá prufutúr á svarta franska eðalvagninum af peougot gerð.  Kom í ljós að hann var allur hinn ágætasti og var ákveðið að reyna að fjármagna bifreiðakaupin í gegnum Den Danski Bank.  Ekkert mál!!!!  En allt tekur tíma hér.  Ég þurfti að fara í bankann með pappíra og græja endanlegt verð á bílinn og fara svo AFTUR í bankann(ég er farinn að hitta þessa bankastelpu óeðlilega oft).  Eftir að fengið vilyrði fyrir láninu og fengið tékkann í hendur var haldið aftur af stað til Egebjerg [íbjerg], bílasalinn fékk tékkann og ég fékk bílinn.  Loksins kominn á eigin bíl.  Þennan fína svarta eðalvagn af peougot gerð á verði sem kom á óvart.

Karen Guðlaug átti afmæli í gær og mér fannst alveg tilvalið að ganga frá þessum bílakaupum þannig að þetta varð afmælisbíllinn hennar Karenar.  Ekki amalegt að fá bíl í ellefu ára afmælisgjöf Smile.  Á meðan ég sinnti viðskiptaerindum (gekk frá þessum bílakaupum) fór Stella með öll börnin til Árósa í lest og strætó með öllu því labbi sem því fylgir.  Þau fóru í Toys'r us og Bilka og voru næstum því búin að kaupa trampolín og sundlaug á spottprís.  Sem betur fer var ákveðið að bíða aðeins með þau áhöld.  Eftir að hafa þvælst í bilka og dótabúðum (í tilefni afmælis Karenar)var haldið heim á leið.  Þegar þau voru á lestarstöðinni í Hörning hitti ég þau, stella og krakkarnir á hjólunum og ég á  þessum fína svarta eðalvagn af peougot gerð á verði sem kom á óvart.

Þegar við komum heim opnaði Karen nokkra afmælispakka, heyrði í fólki að heiman og spjallaði svo við Guðbjörgu vinkonu sína á MSN.  Vegna hitans fóru krakkarnir að sulla með vatn og skvettu því á allt og alla og skemmtu sér alveg konunglega.  Við stella fengum líka okkar skerf af vatni.  Enginn er verri þótt hann vökni nema að hann drukkni.

kveðja, Arnþór


Næstum allt of heitt.

Það er sko ekki hægt að segja annað en að það sé sumar hér.  Steikjandi hiti og yndislegt veður. 

Á föstudaginn fórum við á ströndina.  Fyrst tókum við lest inn til Árhúsa og þaðan strætó.  Það var bara gaman en við vorum nú ekki lengi svona í fyrsta skiptið.  þess í stað skeltum við okkur inn til Árhúsa, löppuðum þar um og fengum okkur að borða á Ítölskum veitingastað. Þetta varð bara yndislegur dagur og við vorum ekki komin heim fyrr en um 10 leitið.  Það er nú erfitt að ferðast svona með lest og strætó þegar maður er vanur að vera á bíl en þetta á eftir að venjast.  Reyndar er Arnþór núna að skoða bíl sem við munum líklega kaupa.  Svo vonandi verðum við komin á bíl fyrir helgi.

En á morgun er stór dagur hjá okkur.  Hún Karen litla á afmæli, verður ellefu ára.  Svo það er nú varla hægt að kalla hana litla lengur, sérstaklega þar sem hún er orðin stærri en ég.  Við erum ekki alveg búin að ákveða hvað skal gera en við ætlum að fara eitthvað, dýragarð eða sædýrasafn kannski.  Auðvitað verður bakað og blásið á kerti en allt annað kemur bara í ljós.  Svo erum við líka í vandræðum með afmælisgjöfina.  En við stefnum á Toys'r us.  Við fáum örugglega eitthvað þar.  Reyndar langar mig mest að kaupa bara trambólín og gefa þeim en það er ekki hægt að koma því fyrr hér fyrir utan strax.  Það á eftir að laga lóðina.

Svo núna ætla ég út í sólina, það er svona 28-30 stiga hiti.  Við Arnþór vorum reyndar farin af stað kl.8:30 í morgun að versla.  Fengum aftur lánaðann bíllinn hjá Halli í gær en Arnþór ætlaði að skila honum um hádeigi svo við fórum snemma af stað.  Þá var þegar orðinn 26 stiga hiti svo það er heitt.

Nóg í bili, við þurfum að fara inn til Árhúsa þegar Arnþór kemur að  kaupa afmælisgjöf (gjafir).

Stella 


Flutt á nýtt heimili

Hæhæ

 

Nú erum við loksins komin með internetið.  Það er ótrúlegt hvað maður er háður þessari tækni.  En loksins gefst mér færi á að blogga aðeins.  Nú er miðvikudagurinn 23. júlí, næstum tvær vikur síðan ég skrifaði síðast.  Ég ætla að segja ykkur svona það helsta sem gerst hefur þessar tvær vikur.  Við erum flutt inn í húsið og erum alsæl með það.  Það er bjart og alveg paslega stórt.  Krakkarnir eru allir með sér herbergi og ég held að það sé það sem þeim þykir best. Við fluttum inn á mánudeginum fyrir viku.  Sama dag kom Lauga til að aðstoða okkur.  Það var ómetanlegt aðfá hanna til aðstoðar.  En það var nú frekar viðburðarmikill dagur þegar við vorum að flytja.  Við vorum ekki viss um að við kæmum öllum farangrinum í einni ferð en það tókst þó á endanum.  Við vorumhérna í nokkra klukkutíma áður en gámurinn kom.  Gámurinn átti að koma kl. 5 og þá ættluðu Hallur og Raggi að koma og hjálpa okkur að tæma hann.  En klukkan 4.30 kallar Pétur Geir að gámurinn sé kominn og við fengum algjört kast.  Við fáum nefnilega bara 1 klukkutímatilað tæma og það var enginn kominn til að hjálpa okkur.  En þá komu góðar fréttir bílstjórinn ætlaði bara að skilja gáminn eftir og sækja hann daginn eftir.   Hvílík heppni.  Svo við höfðum engar áhyggjur.  Gámurinn var losaður frá og bílinn að keyra í burtu þegar hann feswtir sig.  Og það var heilt bíó að sjá alla kallanna moga í kringum bílinn ogreyna að losa hann..  En hann losnaði ekki fyrr en eftir að dráttarbíll kom og losaði hanna en þá var gámurinn longu tómur og klukkan orðin átta.  Í millitíðinnni fór ég að ná í Laugu.  Og það var ótrúlega mikið gert þetta fyrsta kvöld.  Öllum herbergjum var komið í lag, öll trúm upp og margir tómir kassar.  Daginn eftir þá var unnið hörðum höndum að því að koma eldhúsinu og stofunni í lag og ennþá fleirri kassar tæmdir.  Það er með ólíkindum hvað þetta gekk allt saman vel. 

 

Nú er komið kvöld, það ætlar sko aldeilis að taka mig langan tíma að koma þessu frá mér.  Það er líka svo slæmt að hafa ekki netið tengd við mína tölvu.  Tölvan hans Arnþórs er bara tengd við netið svo ég þarf að færa þetta inn á hana til að koma þessu á netið.  En ok, höldum áfram.  

 

Það gekk bara vel að koma hlutunum í lag og á fimmtudeginum fór Lauga aftur heim til Íslands.  Svo við ákváðum að taka hlutunum rólega og skelltum okkur til Árhúsa.  Það var bara rosalega gaman að rölta þar um miðbæinn.  Við skoðuðum meðal annars 900 ára gamla kirkju sem var hreint æðisleg.  Á föstudeginum ákváðum við að skreppa í Tívolí þar sem þetta var eiginlega seinasti heili dagurinn hans Friðriks hjá okkur.  Við skemmtum okkur æðislega og auðvitað rigndi.  Það hefur nefnilega rignd nokkuð mikið síðan við komum til Danmerkur.  Alla vega eitthvað á hverjum degi.  Eins og Friðrik orðar það þá: kom hann til Danmerkur og sá rigningu.  En það hefur aldrei rignd eins mikið eins og þennan dag í tívolíinu.  En það var í lagi, við skemmdum okkur vel og fórum ekki heim fyrr en við lokum kl. 10 um kvöldið.

 

Á laugardeginum var komið að því að fara með fyrsta gestinn okkar í lestina og kveðja hann.  Gestur númer tvö, Lauga, var kominn og farinn.  Svo nú var komið að Friðrik.  Stelpurnar voru eitthvað þreyttar og vildu vera heima.  Og allt í lagi við leyfðum það.  Við fórum um tvöleytið og Friðrik tók lestina frá Horsens.  Stelpurnar voru einar heima í næstum 4 klukkutíma og þær hringdu ekki einu sinni.  Það verð ég að segja að sé hreint og beint æðislegt.  Ekki búnar að búa þarna nema fimm daga en strax orðnar svona öruggar með sig.

 

En nú vorum við orðin ein.  Það var yndislegt að hafa Friðrik og hann hjálpaði okkur mjög mikið.  Eins var frábært að fá Laugu út.  Svo eftir einungis 5 daga á nýjum stað erum við þegar búin að hafa tvo gesti og nú bíðum við bara eftir þeim næstu. J

 

En síðan þá erum við að mestu búin að vera heima við að ganga frá og versla það sem þarf að versla.  Við vorum að hugsa um að skreppa niður til Þýskalands en hættum við í bili.

 

En á morgun verðum við bíllaus.  Ég veit ekki hvernig það mun ganga en við verðum að láta það ganga alla vega í bili.  Bílar eru dýrir hér og við erum ekki alveg tilbúin að binda okkur þannig strax.  Það er ekkert mál fyrir okkur að fá lán en útborgunin er frekar mikil og gengi íslensku krónunnar hefur ekki gert mikið gott fyrir okkur hingað til svo við ætlum að bíða aðeins.

 

En nú eru helstu fréttir komnar fram.  Á morgun verður steikjandi hiti eins og var í dag.  Um það bil 26 stig og glampandi sól.  Við ætlum að vera í sólbaði og slakka á.

 

En núna ætla ég að kveðja í bili en ég mun skrifa fljótt aftur.  Það er helling sem ég á eftir að segja.

 

Stella


Fyrstu dagarnir í Danmörku

Loksins erum við komin með internetaðgang.  Þetta er færsla sem ég skrifaði 10. júlí en gat ekki sett inn fyrr en núna. 

Hæhæ öll sömul

 

Jæja, loksins gefst mér færi á að skrifa nokkur orð.  Reyndar mun ég ekki ná að setja þetta inn á netið fyrr en einhvertíman en ég ætla að skrifa fyrir því. 

Núna er fimmtudagskvöld og klukkan er að verða átta.  Við sitjum úti á verönd að drekka hvítvín og bjór og borðum osta og jarðaber í “kvöldmat”.  Og súkklaðihnetusmjör með jarðaberjunum.  Strax er farið að verða vart við vandamál hjá Friðrik varðandi drykkjuna og við erum farin að ræða það að hætta að kaupa bjór eða fara með hann í verslanir.  Nei, bara jóke.  Það er bara rosalega gaman hjá okkur og við erum öll alsæl og ekkert nema gott hægt að segja um félagsskapinn.  Við höfum ekki farið erlendis áður með Friðrik en þetta er bara gaman og hann er fínn ferðafélagi.

Ég er reyndar að reyna að losna við þau í gönguferð svo ég fái smá frí og tíma til að skrifa, truflunarlaust en.... ekki tekist enn.  En ég ætla að segja ykkur frá því sem gerst hefur síðan ég skrifaði síðast.

Við vorum að bíða eftir Laugu og Ödda til að keyra okkur út á flugvöll og við vorum komin út á flugvöll rétt fyrir kl. 10 um kvöldið (sko á mánudagskvöldið).  Þá var auðvitað allt lokað og við fengum okkur bara bjór (krakkarnir bara gosJ) og settumst niður og slökkuðum á.  Svo fórum við aðeins í búðirnar en það eina sem við keyptum var nú bara Eldur-Ís vodka og Reykjavodka til að eiga hér úti.  Flugið var alveg á réttum tíma og við vorum þrjá klukkutíma á leiðinni út.  Flugið hefði nú mátt vera skemmtilegra.  Aðalega vegna þess að krakkarnir gátu engan vegin sofnað og þar með ekki við heldur.  Við lentum svo í Köpen kl. 6 að dönskum tíma.  Fengum okkur smávegis morgunmat og fórum svo í lestina tuttugu mínútur í átta.  Lestarferðin var nú töluvert þægilegri en flugferðin, aðalega vegna þess að sætin voru betri og plássið meira.  Þannig að flest okkar gátum sofnað eitthvað.  Reyndar horfðum við Pétur Geir á myndina Shooter í lestinni.  En ég náði að loka augunum smá tíma.  Reyndar varð ég frekar pirruð í þessari lestarferð.  Það er nefnilega hægt að greiða fyrir sérstök sæti en það var okkur ekki sagt fyrr en við vorum búin að borga sætin.  Svo við vorum ekki með föst sæti og endilega þurftu að koma einhverjir danir sem bókuðu sætin sem við vorum í og ekki bara einu sinni heldur tvisvar.  Og þeir sem þekkja mig vita að ég er nú ekki alltaf umburðarlyndasta manneskja og þar sem það var ég og krakkarnir sem lendum í þessu en ekki Arnþór og Friðrik þá varð mín létt brjáluð út í Arnþór, auðvitað J.  Og eftir að þetta gerðist í fyrsta skiptið rauk ég á hann alveg brjáluð.  Greyið Friðrik hélt að ég mundi drepa Arnþór með augnaráðinu einu saman.  En eftir að þetta gerðist aftur þorði Arnþór ekki einu sinni að horfa í áttina til mín.  Ég get verið svodan grippa.

En við lifðum þetta af og fórum úr lestinni í Horsens þar sem tóku á móti okkur yndisleg hjón.  Þau heita Hallur og Steinunn, Hallur var með Arnþóri í meistaraskólanum, þannig þekkjast þeir.  Reyndar hef ég skrifast nokkrum sinnum á við Steinunni vegna skólanna hér í Danmörku, þar sem hún er kennari og vann sem slík seinasta vetur hér í Horsens.  Þetta eru yndisleg hjón og þegar ég hitti þau fannst mér að ég hefði þekkt þau lengi.  Þau eiga eina dóttir, Áróru sem er ferlega sæt, og von á öðru eftir nokkrar vikur.

Þau keyrðu okkur upp í hús hér í Horsens.  Það er húsið sem við erum í þar til við fáum okkar afhend.  Þau lánuðu okkur líka bíl svo við erum ekki bíllaus.  Alveg yndislegt fólk.  Svo við vorum komin upp í hús upp úr klukkan ellefu á þriðjudags morgni og öll verulega þreytt.  Töskunum var hend inn og farið svo út að kaupa eitthvað létt til að borða og eftir það lögðum við okkur.  Við ákváðum að sofa ekki lengi heldur fórum af stað og kíktum í heimsókn til Halls og Steinunnar þar sem var tekið á móti okkur með kaffi og meðlæti. 

Um kvöldið elduðum við kjúklingabita og sátum svo yfir sjónvarpinu þar til við sofnuðum um miðnætti.  (Eftir að hafa drukkið pínulítið J af bjór).  Reyndar fórum við Friðrik og stelpurnar í göngutúr fyrir mat um hverfið.  Við ætluðum út í búð en sú búð var lokuð kl. 7 svo við skoðuðum okkur aðeins um í staðinn.  Í miðri gönguferðinni fór að rigna og auðvitað vorum við ekki með regnhlífar og vorum við orðin töluvert blaut þegar við komum loksins heim.  En þar sem það var um 20 stiga hiti úti fundum við nú ekki mikið fyrir þessu.

Svo var kominn miðvikudagur.  Við heldum reyndar öll að það væri fimmtudagur og vorum frekar þreytt og vitlaus.  En við vöknuðum fyrir kl. 12 og fórum á endanum út og niðrí miðbæ Horsens og löppuðum þar nokkurskonar “Laugaveg”.  Það var bara fínt og svo fórum við að versla í matinn, heim að elda og settumst svo við sjónvarpið með bjór og bara hengum.  Við vorum ennþá vel þreytt eftir ferðina og ekki upp til stórræðanna. En eins og kvöldið áður fórum svo að sofa seint og um síðir en samt ekki fyrr en eftir góðan göngutúr.  Núna var það Friðrik sem varð eftir heima en ég, Arnþór, Pétur Geir og stelpurnar fórum.  Það var virkilega gaman að skoða sig svona um og húsin hér í kring eru hvert öðru fallegra.

 

Svo kom dagurinn í dag, fimmtudagur.  Við vöknuðum reyndar ekki fyrr en klukkan hálf tólf þegar Arnþór vakti okkur.  Auðvitað vaknar hann alltaf fyrstur.  Svo rétt eftir að við vorum öll vöknuð var dyrabjöllunni hringt.  Þá var það hann Valdimar og það var síminn til okkar.  Valdimar er nokkurs konar gæslumaður húsins.  Hann býr ásamt konu sinni í hluta þess en hinn hlutinn er sá sem við erum í er til leigu.  Ok.  Sú sem var í símanum var Sigrún Thormar.  Og hún hafði auðvitað fréttir.  Þeir voru auðvitað ekki alveg tilbúnir með húsið til afhendingar á morgun.  ( og hann sonur minn stendur núna fyrir aftan mig og hvartar undan því að ég skuli ekki blogga “allmennilega” eins og hann segir, allmennilegt blogg er þegar maður skrifar: “ég var að borða jarðaber með hangikjöti í borgunmat og minnir að ég hafi fengið mér hálft mjólkurglas með”.  Sem sé mjög nákvæmt staðreyndarblog.  En sem betur fer er hann nú farin í hina reglubundnu kvöldgöngu með liðinu).  (Ég heyri í uglu).  Ok, en snúum nú okkur aftur að því sem Sigrún sagði Arnþóri.  Húsið yrði ekki tilbúið til innflutnings fyrr en á laugardag.  Við mundum fá lyklana á föstudag en gætum ekki flutt fyrr en á laugardag.  En þar sem gámar eru ekki afhendir um helgar verðum við hér þar til á mánudag. J Sem mér finnst bara allt í lagi.  Og auðvitað borgar leigusalinn það.  Svo hverju get ég kvartað yfir.  Svo við sögðum bar allt í lagi og ekkert vesen.  En við munum hitta Sigrúnu og leigusalan á morgun kl. 11 til að fá afhenda lyklana af húsinu. 

Við ákváðum því, sérstaklega þar sem við vorum töluvert hressari en undanfarna daga að skella okkur uppeftir til Hörning og skoða nýja heimilið okkar.  Við vorum búin að koma liðinu út kl 1:30 og byrjuðum í verslun og Arnþór keypti símkort og vorum lögð af stað upp í Hörning kl.tvö.   Það gekk bara rosalega vel að komast þanngað.  Sem var auðvitað mest að þakka staðsetningartækinu hans Halls sem er í bílnum en, so what?  Ég verð bara að segja það að við vorum öll mjög ánægð með það sem við sáum.  Bæði hvað varðar bæinn og húsið okkar.  Fallegt umhverfi, stutt í skólann og bara allt leit flott út.  Krökkunum leist mjög vel á þetta og þau eru bara svo róleg yfir þessu öllu saman.  Ég verð að segja að ég get ekki verið annað en stolt af börnunum mínum.  Þau taka þessu öllu svo vel og eru svo yfirveguð og bara ánægð með þetta allt saman að...ja, hvað get ég sagt annað en að þau eru yndisleg og ekki væri hægt að hugsa sér betri börn.

Eftir að hafa skoðað húsið okkar og nágrenni keyrðum við til Árhúsa og fórum á McDonalds.  Sem er sko ekki uppáhalds staðurinn minn en Pétur Geir er búinn að vera að bíða eftir að komast þanngað.  Það var nú samt bara fínt og eftir “góða” máltíð þar hringdum við til Íslands heim til Stellu ömmu.  Það var bara fínt hljóðið í henni og hún fær íbúðina afhenda á morgun.  Krakkarnir hennar munu flytja hana um helgina.  Krakkarnir töluðu auðvitað við ömmu og allt var í þessu fína.  Eftir það héltum við heim en þar sem klukkan var bara fjögur urðum við að gera ráð fyrir einhverju í kvöldmat og fórum í verslun og keyptum spaghetti til að hafa um kvöldið.  En auðvitað var enginn neitt sérstaklega svangur svo við sátum hér úti og fengum okkur bara jarðaber og osta eins og ég sagði áður.

Núna er klukka tuttugu mínútur í níu.  Ég sit hér úti á yfirbyggðri verönd í pilsi og hlýrabol og skrifa þetta.  Arnþór, Friðrik og krakkarnir fóru í göngutúr fyrir um tuttugu mínútum síðan.  Það var komið að mér að vera heima.  Ég sit hér með hvítvínsflöskuna, næstum tóma, og fuglasöngurinn bergmálar.  Þetta er yndislegt.

Á morgun munum við fara og fá lyklana að húsinu og hvað við gerum eftir það vitum við ekki.  Við vorum að hugsa um að fara til Árhúsa einhverntíman um helgina og okkur datt það jafnvel í hug að skreppa niður til Þýskalands.  Það er ekki nema 40 mínútur héðan að landamærunum.  Gos og bjór eru miklu ódýrara þar.  En við ætlum bara að láta það ráðast hvað við gerum um helgina.  En að þurfa ekki að standa í flutningum strax og vera bara hér í þessu leiguhúsnæði, er bara yndislegt.  Þetta er okkar sumarfrí.  Á mánudag byrjar svo vinnan en þá kemur gámurinn og þá verður nóg að gera í nokkuð marga daga.  Lauga mun koma á mánudag til að hjálpa til og það verður vel þegið.  Hún mun stoppa fram á fimmtudag.  Jæja, ég heyri að þau eru komin til baka úr gönguferðinni.  Ég ætla því að hætta í bili en mun skrifa meira seinna.  Við biðjum að heilsa öllum heima.

 

Stella


Ferðaáætlun

Vá, ég var búin að skrifa alveg helling og alveg rosalega flott og  hvað haldið þið?  Það hvarf allt saman.  Svo ég nenni ekki að skrifa aftur helling.  En húsið er búið að vera fullt í dag af fólki að kveðja. 

Ferðaáætlunin er svona:  Flugið fer í loftið kl. 1 í nótt, lendum í Danmörk kl. 6 að dönskum tíma.  Tökum lestina um áttaleytið og við verðum í Horsens um kl. 11.  Þangað verðum við sótt.  Það eru alveg indæl hjón sem sem ég hef aldrei séð, en hann var með Arnþóri í meistaraskólanum.  Þau heita Hallur og Steinunn.  Ég hef reyndar verið í Email sambandi við hana.  Og hún virðist virkilega indæl.  Ok áfam með áætlunina.  Þau munu keyra okkur að húsi í Horsens þar sem við verðum fram að föstudegi þegar við fáum húsið afhend.  Ætli við munum ekki fá gáminn á föstudag.  Og Lauga kemur ekki fyrr en á mánudag. 

Svo í bili er þetta svona.  Við munum skrifa aftur um leið og við erum komin í netsamband.

Meira þá.

Kveðja

Stella


Ekkert hús!

Jæja, þetta er nú alveg að verða búið.  Ekki nema hvað... 9 og hálfur tími í flug.  Búin að pakka öllu og nú er bara að bíða.  Ég ákvað að hafa góðan en þægilegan mat fyrir okkur og skellti upp í gúllas.  Það er nauðsynlegt að borða góðan kvöldmat fyrir flugið.  Annars er nú ekkert smáræðis vandamál sem var að koma upp.

Við fáum ekki húsið afhend fyrr en á föstudag.  Og við að fara út í kvöld.  Hún hringdi í mig hún Sigrún Thormar, sú sem sér um allt, og létt mig vita. En hún var auðvitað búin að bjarga þessu máli.  Við fáum húsaleiguna endurgreidda og þeir útvega okkur gistíngu og greiða fyrir það.  Þannig að það má segja að við fáum bara nokkra daga sumarfrí út úr þessu. Smile

Við ætluðum að fá gáminn á miðvikudag en í staðinn kemur hann ekki fyrr en á laugardag og við fáum fleirri daga til að slaka á.  Svo ég er bara ánægð. 

En núna er Dísa komin í heimsókn svo ég ætla að stoppa í bili og tala við hana.  Skrifa meira á eftir, áður en við leggjum í hann.

Stella


blogg #1

Hæ og hó, þetta er Sigurbjörg með sinni BFF GuðbjörguSmilehún ættlar að fá að gista í sitt seinasta sinn. Ég hlakka til að flytja enn ég hlakka ekki til að fara frá my BFF, það verður öruglega leiðinlegt í fyrstu en eignumst við vini og það verður bara gamanSmile   bæ

kv. Sigurbjörg


Fyrsta bloggið mitt.

Hææ það verður leiðinlegt þegar við flytjum en samt ekki, þótt að við förum er ég samt glöð við fáum að læra nýtt tungumál og við krakkarnir kynnumst nýum krökkum og fleira, þetta mun vera ævintýri eiginlega ekki ég er ekki vissShocking.  Það eru tvær manneskjur sem ég mun allavega sakna mest og það er amma og GuðbjörgCryinghún er besta vinkonan mín, hún mun örugglega koma til Danmörku í heimsókn og við til Íslands.  Við verðum ví vstóru vhúsi ven vþað ver vekki vmjög vstórt ven vþað ver vnýtt.  þetta var v vaff línan.  Ég verð í sér herbergi og það er stærsta herbergið.Grin

Karen Guðlaug


3 dagar

Nú er alveg að koma að þessu.  Bara 3 dagar eftir á klakanum og svo er maður kominn til nýrra heimkynna.  Þessir seinustu dagar eru frekar lengi að líða.  Við erum búin að vera að fara í heimsókn og kveðja fjölskyldu og vini þessa viku og ætlum að skella okkur vestur í dag og gista hjá vinafólki í nótt.  Það verður rosalega gaman. 

Annars er bara allt við það sama, nei hvað er þetta, ég gleymi aðalfréttunum.  Friðrik bróðir kemur með okkur út.  Hann var að byrja í sumarfríi og var ekkert búinn að ákveða þannig að ég náði að plata hann með okkur.  Það verður bara frábært.  Og svo kemur tengdamamma á miðvikudaginn.  Sem sé daginn eftir okkur.  Hún ætlar að hjálpa okkur að ganga frá, taka upp úr kössum og þess háttar.  Hún stopar nú bara  i 4 daga en Friðrik verður í 11 daga.

Jæja, við erum á leið til Sunnu ömmu að kveðja svo nóg í bili.

Stella


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Arnþór, Stella og Börn í Danmörku

Höfundur

Stella, Arnþór og Börn
Stella, Arnþór og Börn
Við erum að flytja til Danmerkur þar sem við Arnþór erum að fara í nám. Þetta er svo fjölskyldan á Íslandi geti fylgst með því sem er að gerast hjá okkur

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • CIMG7154
  • CIMG7153
  • CIMG7171
  • CIMG7148
  • CIMG7146

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 526

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband