30.7.2008 | 08:57
Afmælisbíllinn
Jæja, þá er komið að því. Ég hélt að ég myndi ALDREI leggjast í þetta blogg, en svo bregðast krossbönd sem önnur tré. Við erum búin að vera bíllaus í nokkra daga og það er ekkert sniðugt við það. Til að komast í strætó eða lest þurfum við að labba í kringum hverfið, framhjá akrinum, gegnum skóginn, hlaupa fram hjá elliheimilinu (svo að elli-kelling nái manni ekki), og labba svo enn lengra....þig skiljið hvað ég er að fara, fjandanum lengra í strætó eða lest. Nema hvað að ég var orðinn SOLDIÐ þreyttur á þessu rölti/hlaupum í 30 stiga hita þannig að það var ákveðið að finna bifreið handa okkur letingjunum. Við feðgarnir lögðum land undir fót og fórum til Egebjerg [íbjerg] í strætó, en þar átti að vera bílasala, kunn fyrir íslendingaást og trúfestu. Pétur Geir var að niðurlotum kominn þegar strætóstoppustöðinni var náð og náði varla andanum þegar blár og fagur strætó númer 107 renndi í hlað og við stigum um borð. Eftir klukkustundarlangan strætótúr komum við til Egebjerg [íbjerg] en við höfðum ekki hugmynd hvar bílasalan var eða hvar í bænum við vorum. Það eina sem við vissum var að það var heitt og sólríkt. Við löbbuðum af stað út í bláinn og eftir að hafa gengið fram hjá skólanum í bænum, barnaheimili og kaupfélaginu þá blasti við okkur bílasalan í allri sinni dýrð. Að dönskum sið var bílasala lokuð í hádeginu (n.b. við lögðum af stað að heiman upp úr klukkan 10) svo ég hringdi í Hall bjargvætt. Þá kom í ljós að hann bjó steinsnar í burtu og var kominn til okkar eftir augnablik. Við fengum augastað á svartan franskan eðalvagn af peougot gerð á verði sem kom á óvart. Þegar bílasalinn kom aftur þá fórum við í smá prufutúr á svarta franska eðalvagninum af peougot gerð. Kom í ljós að hann var allur hinn ágætasti og var ákveðið að reyna að fjármagna bifreiðakaupin í gegnum Den Danski Bank. Ekkert mál!!!! En allt tekur tíma hér. Ég þurfti að fara í bankann með pappíra og græja endanlegt verð á bílinn og fara svo AFTUR í bankann(ég er farinn að hitta þessa bankastelpu óeðlilega oft). Eftir að fengið vilyrði fyrir láninu og fengið tékkann í hendur var haldið aftur af stað til Egebjerg [íbjerg], bílasalinn fékk tékkann og ég fékk bílinn. Loksins kominn á eigin bíl. Þennan fína svarta eðalvagn af peougot gerð á verði sem kom á óvart.
Karen Guðlaug átti afmæli í gær og mér fannst alveg tilvalið að ganga frá þessum bílakaupum þannig að þetta varð afmælisbíllinn hennar Karenar. Ekki amalegt að fá bíl í ellefu ára afmælisgjöf . Á meðan ég sinnti viðskiptaerindum (gekk frá þessum bílakaupum) fór Stella með öll börnin til Árósa í lest og strætó með öllu því labbi sem því fylgir. Þau fóru í Toys'r us og Bilka og voru næstum því búin að kaupa trampolín og sundlaug á spottprís. Sem betur fer var ákveðið að bíða aðeins með þau áhöld. Eftir að hafa þvælst í bilka og dótabúðum (í tilefni afmælis Karenar)var haldið heim á leið. Þegar þau voru á lestarstöðinni í Hörning hitti ég þau, stella og krakkarnir á hjólunum og ég á þessum fína svarta eðalvagn af peougot gerð á verði sem kom á óvart.
Þegar við komum heim opnaði Karen nokkra afmælispakka, heyrði í fólki að heiman og spjallaði svo við Guðbjörgu vinkonu sína á MSN. Vegna hitans fóru krakkarnir að sulla með vatn og skvettu því á allt og alla og skemmtu sér alveg konunglega. Við stella fengum líka okkar skerf af vatni. Enginn er verri þótt hann vökni nema að hann drukkni.
kveðja, Arnþór
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Arnþór, Stella og Börn í Danmörku
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hallo fyrst langar mig til að seja Til haningu með afmælið Karen mín og til hamingu með nya bílinn og eg og við óskum ykkur hinum lika til hamingu með bílinn lika og von um að þið hættið ekki að fara ut að ganga eg heiri ða ykkur liður vel og það er lika yndislegt að lesa blogið
kær kveðja Guðrun ÁKONA FRÆNKA
Gudrun Thorisson (IP-tala skráð) 30.7.2008 kl. 23:31
hallo fyrst langar mig til að seja Til haningu með afmælið Karen mín og til hamingu með nya bílinn og eg og við óskum ykkur hinum lika til hamingu með bílinn lika og von um að þið hættið ekki að fara ut að ganga eg heiri ða ykkur liður vel og það er lika yndislegt að lesa blogið
kær kveðja Guðrun MÁKONA FRÆNKA
Gudrun Thorisson (IP-tala skráð) 30.7.2008 kl. 23:37
Sæll vinur og frændi..
Mér finnst þetta líta alveg rosalega vel út hjá ykkur og sé að það er spennandi heimur á hverjum degi. Er alveg viss um að þetta á eftir að ganga rosalega vel hjá ykkur. Heimilið ykkar lítur bara skratti vel út. Hlakka til að koma og sitja og sötra með þér, en Öl og en danske smörbröd.. hihi
OG GAMMEL DANSK!! Er búinn að þvælast um landið þvert og klára bílakjaftæðið þitt eftir helgina endanlega eftir helgi!!!!!!!! Búinn að tala við pabba þinn þannig að ég er viss um að þetta klárist eftir helgi.
Ástarkveðjur og koss og knús til allra
kveðja Yfirlíbertíninn og co
..og Gísli biður að heilsa afa og frænkum

Snorri og Nanna (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 23:24
Æ já til hamingju með afmælið Karen mín
kv Gísli Wium og mamma mín og pabbi
Hæ aftur (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 23:29
Jihh fyrir algjöra slysni rakst ég á þetta líka skemmtilega blogg. Bara gaman af því.
Innilega til hamingju Karen með afmælið þitt:)) Og til lukku með fína bílinn, hann er nú eitthvað skyldur okkar, að minnsta kosti eru þeir frændur. Enda bráðlíkir alveg og gullfallegir náttúrulega.
He he Arnþór, þú ert alveg búinn að ná framburðinum á bæjarfélaginu, eftir ekki lengi dvöl í landi bóndanna en þetta:)
En Stella ég er svo agalega forvitin, og er búin að vera, hvort þú sért búin að fá svar frá skólanum.
Hafið það annars sem best í hitanum og við hittumst nú vonandi fyrr en seinna, við erum bara ennþá að bíða eftir þessum blessaða dreng sem er sennilegast ekkert á leiðinni í heiminn þannig að eitthvað takmarkað er nú gert á þessu heimili þessa dagana.
Bestu kveðjur úr einmitt Egebjerg,
Steinunn og Hallur
sem einu sinni bjuggu í háagerði;))
Steinunn (IP-tala skráð) 2.8.2008 kl. 15:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.