7.8.2010 | 06:32
Styttist í skólann
Jæja, mikið afskaplega er gaman að henda sér á bloggið aftur. Það hefur legið í ljúfum dvala síðan strákurinn var fermdur.....þeas í FYRRAVOR!!!
En nú erum við búin að njóta danska sumarsins til hins ýtrasta, skruppum á ströndina í ajstup, fórum í stutta heimsókn á vatn við Ry og höfum verið mikið hérna í garðinum og krakkarnir á trampólíninu. Stella er farin að sjá fyrir endann á dönskunáminu og svo geri ég einnig ráð fyrir að klára í janúar á næsta ári. Það er allskostar óvíst hvað tekur við eftir það. Ég er amk hættur í skóla eftir það!!! Það er nóg á leggjandi á svona gamalmenni eins og mig að maður sé ekki hangandi í skóla fram eftir öllu....jafn þægileg og það nú er. Ég er byrjaður að hnýsast með vinnu eftir áramót og vonandi kemur eitthvað út úr því.
Jæja, látum þetta duga í bili...ég bið að heilsa....eftir Inga T
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Arnþór, Stella og Börn í Danmörku
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.