14.5.2009 | 20:02
Fullorðinn, Aghmed og Muhamed.
Hæ
Ferminginn er búinn og nú erum við 3 fullorðin og 2. börn. Sem sé ég, Arnþór og Pétur Geir sem fullorðin og stelpurnar, Sigurbjörg og Karen sem börnin.
Fermingardagurinn var alveg yndislegur dagur. Sólin skein í heiði þegar við vöknuðum og kóalabirnir voru að hlaupa um með eldvörpur. Við vorum komin í kirkju stuttu eftir klukkan 9, öll fínpússuð og sæt, (í stuttum pilsum og skyrtum). Eftir útlenska fermingu með engum kýrtlum þá var haldið heim þar sem við fengum ítalskar bruchettur (brauð). Eftir síesta fengum við okkur gögnutúr. Eftir það lögðu sumir sig meðan aðrir spiluðu og svo var tekið til við drykkju.
Það er siður í Danmörku að drekka áfengi í fermingarveislum. Svo við drukkum bjór, ekki mikið en samt bjór. Fermingarbarnið fékk líka bjór. Hann stóð sig nú ekki vel í drykkjunni. Einn sopi var allt sem hann vildi, það hefur nú ekki þótt mikið hingað til en það var allt sem Pétur Geir fékk sér af bjór á fermingardaginn sínn.
Aðalrétturinn var T-bone steik, sem var alveg brjálæðislega góð. Við grilluðum hana úti. Það er að segja Arnþór og Afi grilluðu.
Í eftirrétt var ís og ítölsk súkklaðikaka. Rúnar, María, börn og foreldrarrRúnars komu í eftirrétt og kaffi og settu punktinn yfir i-ið á þessum yndislega degi.
Strákurinn fékk nú ekki mikið af fermingargjöfum en deginum var bjargað af öllum umslögunum sem amma og afi komu með frá Íslandi. Við áttum ekk til orð yfir því hvað margir hugsuðu til stráksins. Við erum óendanlega þakklátt fyrir það.
Blár mánudagur er einnig siður hér í Danmörku. Á mánudeginum eftir fermingu fara fermingarbörnin saman í bæinn og versla og gera eitthvað skemmtilegt. Pétur Geir og fermingarsystkini fóru til Árhúsa, borðuðu saman og tóku upp vídeó. Pétur Geir skemmti sér konunglega og var himinlifandi þegar hann kom heim.
Svo allt í allt er hægt að segja að fermingardagurinn hafi verið góður og velheppnaður. Alla vega var Pétur Geir ágægður og það er það sem skiptir öllu máli.
En þið viljið eflaust vita hver Aghmed og Muhamed eru. Þeir eru ímynduðu geiturnar hans Péturs Geirs sem hann keypti sér í gær í staðinn fyrir hjól. Þeir eru betri en slátturvél og nýtast betur en hjól.
Svo, við Arnþór þökkum þeim sem mundu eftir stráknum okkar. Hinir...... vonandi líður ykkur vel.
Stella
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.5.2009 | 06:19
Fermingardagurinn
Eftir klukkutíma á drengurinn að mæta í kirkjuna. Fermingin verður klukkan hálf tíu að staðartíma, tími sem maður á ekki að venjast fyrir svona athafnir. Stelpurnar eru á fullu að gera hárið klárt og Stella er að fikta í öllum til að fínpússa smáatriðin. Eftir athöfnina komum við heim og þá verður haldin veisla sem mun standa í allan dag. En þangað til skulum við bíða þar til presturinn hefur tekið drenginn í fullorðinna manna tölu....eftir rúman klukkutíma. Arnþór
8.5.2009 | 21:58
Ferming yfirvofandi!!!
Núna á sunnudaginn mun erfðarprinsinn fermast. Gestir hvaðanæva úr heiminum (aðallega Íslandi) hafa verið að flykkjast til okkar til að vera viðstaddir þessan merkisatburð og geri ég ráð fyirr að þeir gisti báðir heima hjá okkur. Mamma kom á fimmtudaginn og pabbi kom áðan eftir langt og strangt ferðalag frá Síberíu. (Það þykir vissara að hafa það á hreinu að pabbi er ekki frá Síberíu, hann var bara að vinna þar).
Í fyrramálið förum við í heimsókn til slátrarans og finnum okkur eitthvað gott á grillið til að hafa á sunnudaginn. Samkvæmt óskum fermingabarnsins á að vera T-beinasteik (T-BONE) en það á bara eftir að koma í ljós hvað verður fyrir valinu.
Vonandi verður þetta eftirminnilegur dagur fyrir strákinn.
Læt þetta duga í bili, blogga meira næst
Arnþór
Um bloggið
Arnþór, Stella og Börn í Danmörku
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar