Fuglaflensan í Pétri Geir

Ástandið er nú heldur en ekki óskemmtilegt þessa dagana,  80% heimilisfólksins er sjúkt.  Það er þessi leiðindar hálsbólga, hiti og beinverkir sem er búið að vera hér síðustu daga.  Það er ekki alveg á hreinu hver kom með þetta fyrst en Sigurbjörg veiktist síðust.  Þessi hálsbólga er búin að vera að grassa í krökkunum alla seinustu viku en svo á föstudagskvöld þá fékk Pétur Geir rosalegan hita og mikla beinverki.  Eða eins og hann sjálfur segir; ,,ég var afskaplega veikur".  Sick Hann var með svo mikinn hita að ég hefði getq steikt egg á honum.  Hann var auðvitað alveg afskaplega viss um það að hann væri kominn með fuglaflensuna og þegar fiður fór að vaxa á höfðinu á honum þá vöru afskaplega miklir líkur á því LoL.  Hann er svo dramatískur greyið.  En öllu gamni slepptu þá leið honum afskaplega illa.  Arnþór veiktist á fimmtudag og er ennþá slæmur í hálsinum, auðvitað er ég líka með hálsbólgu og svo Sigurbjörg sem var mjög veik þegar hún kom frá vinkonu sinni á laugardagsmorgun, en hún hafði gist þar um nóttina.  Svo sú eina sem er við hesta heislu er Karen Guðlaug.  Það er að segja fyrir utan þett Goth dæmi hjá henni.  Er ekki myndin af henni flott?  Við Arnþór erum alveg á því að ef hún (þegar) hún fer í unglingauppreisnina þá sé þetta lookið hennar.  Þetta er svo náttúrulegt hjá henni að vera svona svört.  Reyndar var hún að fara í búningaafmæli.  En hver veit????

Það er svosem ekki mikið annað að frétta frá okkur.  Ég hef reyndar verið að hugsa um að skrifa vel valin orð til vissra aðila en ég ákvað að sleppa því.  Ég tel mig bara vera meiri manneskju fyrir vikið. 

Dísa, það er alveg sjálfsagt að kaupa fyrir þig í HM. Ég er ákveðin í því að senda þér svona ullarsamfellur sem eru alveg frábærar en þar sem ég veit ekki hvort þær ættu að vera bleikar eða bláar þá færðu þær ekki fyrr en krílið er fædd.  Svo geturðu alltaf komið út og verslað, ekki málið. 
Gengið getur ekki alltaf verið svona hátt en hvenær það lagast, það veit enginn.

Annars er ég loksins búin að fá tíma á lungnadeildinni á sjúkrahúsinu í Árósum.  Ég fæ ekki tíma fyrr en 15 janúar.  Svo þanngað til verð ég að vera á þessum astmalyfjum sem ég er á, þrátt fyrir að þau séu nú ekki að hjálpa mér alveg.  En svona er nú þetta bara.  Ég lifi bara við það Errm.

Jæja, ég ætla að halda áfram að læra og elda.  Biðjum að heilsa öllum sem lesa þetta. Smile

Stella 

 

 


Samkvæmislíf á fullu.

Það er nú ekki mikið að frétta frá Danaveldi þessa dagana, nema það að við erum alveg óskaplega ódugleg að skrifa á bloggið.  En betra er sjaldan en aldrei.  Svo, það er búið að vera mikið að gera hjá okkur öllum undanfarið.  Hjá Karenu er það hvert afmælið á eftir öðru, eitt seinustuhelgi, eitt á morgun og annað næstu helgi.  Sigurbjörg var á skautum seinustu helgi og er núna að fara í Ungdomsklupp, þar sem stelpur úr 6 og 7 bekk koma saman til að skemmta sér, borða saman, snyrta sig og tala um stráka.  Og Pétur Geir var í Halloween partýi seinasta föstudag og skemmti sér konunglega og við Arnþór vorum í afmæli seinasta laugardag.  Svo fullt af öllu. 

Afmælið sem við Arnþór fórum í var mjög alþjóðlegt, þar voru danir, mexikanar, litháar og íslendingar, bara virkilega skemmtilegt.  Svo á mánudag komu Steinunn og Hallur í heimsókn og við borðuðum saman.  Það var virkilega gaman.  Þau verða í forsvari fyrir unglingaklúbb hjá íslendingafélaginu í Horsens sem er verið að koma á lagirnar.  Við ætlum að láta krakkana fara, alla vega til að leyfa þeim að sjá og athuga hvernig þeim líkar. 

Við ætlum loksins að láta af því að fara og kaupa rúm handa Sigurbjörgu um helgina.  Það er sko löngu “overdue” en svona er námsmannalíf, það er ekki alltaf hægt að gera allt sem maður vill þegar maður vill. 

Reyndar munum við fara aftur í kirkju um helgina.  Við erum farin að gera það frekar reglulega.  Ekki það að við séum orðin svona trúuð heldur er frumburðurinn að fara að fermast næsta sumar.  Já, hann verður fermdur um sumar, ja allavega er komið sumar hér þá.  Við tókum þá ákvörðun að láta ferma hann hérna úti, þau munu öll fermast á þessum þremur árum sem við verðum hérna og það er ekki ódýrt að fara með fimm manna fjölskyldu til Íslands hvað þá á hverju ári svo ákveðið var að ferma þau öll hérna úti.  Það verður sama að ganga yfir þau öll.  Pétur Geir mun fermast 10. maí 2009, kl 9:00.  Svo það munu sko allir vakna ROSALEGA snemma, en það er ekki fyrr en eftir sex mánuði.  En hann verður að fara í kirkju alla vega 10 sinnum og læra auðvitað bæði faðir vorið og trúarjátninguna á dönsku.  Við erum einu sinni búin að fara öll saman í kirkju og þá voru tvær skírnir í messunni.  Það var svolítið gaman en stelpurnar báðust undan því að fara aftur fyrr en þær fermdust sjálfa.  Þeim fannst þetta ekki svo skemmtilegt, svo þær munu ekki þurfa að fara aftur á næstunni.  En við Arnþór munum bara skiptast á að fara með strákinn.

Jæja, það er best að koma sér að elda.  Svo þetta er nóg í bili.  Við biðjum að heilsa ykkur sem lesa þetta og vonum að þið hafið það sem best þrátt fyrir þessa miklu erfiðleika sem eru í gangi núna.

 

Stella


Þetta er ástæðan fyrir því að ég fór ekki í viðskiptafræði

Aumingja Stella, hún situr pungsveitt og botnar ekkert í því hvers vegna þessi húsmæðraskóli sem hún er í (Århus Handelshöjskolen) leggur svona mikla áherslu á business hitt og business þetta.  Ég var að reyna að fá einhvern botn í þetta sem hún Stella var að gera og ég verð bara að segja að þetta er ALGJÖRT RULG!!!!  En hvað um það.  Mér var farin að leiðast biðin eftir því að eitthvað bitastætt kæmi á þetta blogg, þannig að ég sá mér þann kost vænstan að skrifa eitthvað sjálfur.

Pétur Geir er allur að braggast eftir að hafa lent í slagsmálum við bíl.  Hann má náttúrulega ekki fara í leikfimi eða stunda "kontakt"sport í 3 mánuði í viðbót þar sem lifrin í honum beið lægri hlut fyrir bílnum.

Skólinn potast hjá mér, þetta er svolítið mál að byrja svona á 3. önn þar sem það er svo mikið sem mig vantar en það ætti að hafast.  Við erum bara að vinna í verkefninu okkar (sem er verksmiðja úr forsteyptum einingum  og skrifstofubygging úr forsmíðuðum timbureiningum).  Á næst mánudag eigum við að skiptast á verkefnum við skólann í árósum og við eigum að gera tilboð í timbureiningarnar og svo eigum við að framleiða þær.

Stellu gengur ágætlega í skólanum en eins og alþjóð veit þá er hún EKKI í húsmæðraskóla.  Þetta er auðvitað bara hebreska fyrir mér, en hún fílar þetta og heldur ótrauð áfram.

Við hjónakornin erum að fara í partý um næstu helgi og við þurfum að vera í grímubúning.  Stella verður Norn og ég held að ég verði Huge Hefner, náttföt og pípa.  Bara notalegt.

Bíllinn okkar varð fyrir nettu áfalli um daginn, það losnaði eitthvað í stýrisgangnum og það var varla hægt að beygja til hægri, nema á mikilli ferð.  Við vorum frekar á tauginni með að þetta færi með fjárhaginn (sem er orðinn frekar bágur þessa dagana) því að ég gat engan veginn fundið út hvað var að bílnum.  Ég fór með hann á verkstæði og 2 tímum seinna fór ég með hjartað í buxunum með það að nú yrði maður alveg endanlega gjaldþrota, en viti menn....þetta var bara einn bolti sem hafði losnað og reikningurinn var bara .....tja, einn tími á verkstæði og einn bolti plús virðisauki.  Miklu minna en við höfðum óttast að það yrði.

Stelpurnar eru á fullu við að læra dönskuna og þeim gengur bara vel.  Við erum að fara á foreldrafund í vikunni og þá kemur í ljós hvernig málin standa. 

Við vorum í sambandi við bankann okkar fyrir helgi og báðum um að námslánin yrðu send til okkar sem fyrst, þar sem von væri á töfum frá Dabba kóngi (seðlabankastjóra).  Nú er aurinn lagður af stað í ferðina miklu og vonandi gengur þetta hratt og vel fyrir sig.

Nóg í bili, látum ekki líða svona langt á milli

kveðja, Arnþór


Prinsinn heim

Jæja, nú er prinsinn kominn heim eftir sjúkrahúsdvölina.  Hann verður heima í dag og á morgun, en hann skreppur eitthvað í skólann á miðvikudaginn.  Hann má ekki gera neitt sem getur valdið höggum á lifrina í ca 3 mánuði, þar með taldar íþróttir í skólanum.  En hann má fara í sund og hjóla og þess háttar.  Mamma ætlar að koma á miðvikudaginn og vera til halds og trausts rétt á meðan guttinn er að komast á sæmilegt ról.  Það er nóg að gera hjá okkur Stellu í skólanum og við megum ekki við að missa meira úr skólunum okkar.  Við erum bara fegin að hann skuli vera kominn heim og ekki meira slasaður en raun ber vitni. 

kveðja

Arnþór


Spítalalíf

 Laugardagur 27. sept. 2008 

Ohh, ég gæti grátið.  Við vorum að borða morgunverð og bíða eftir að læknirinn kæmi til að útskrifa Pétur Geir en nei; það gerði hann ekki.  Hann fær ekki að fara heim fyrr en á mánudag.  Þeir vilja ekki taka áhættuna.  Svo þetta er miklu meira heldur en maður gerir sér grein fyrir.  Áverkar sem sjást ekki eru ekki eins afgerandi og þeir sem sjást.  Og maður gerir sér ekki grein fyrir því hvað þeir eru miklir.

 

Ég veit ekki hvað Arnþór skrifaði um slysið en þessi reynsla er sú versta sem ég hef lent í.  Ég mundi ekki óska neinu þess að lenta í þessu.  Það er bara ekki hægt að lýsa því sem gerist þegar manni er sagt að barnið manns hafi lent í bílslysi.  Sem betur fer þá var ég að fara til læknis þennan morgun og þess vegna var Arnþór enn heima.  Ég veit ekki hvernig ég hefði höndlað þetta án hans.  Karen kemur hlaupandi inn, grátandi, og segir að Pétur Geir hafi lent í bílslysi, Arnþór greip bíllyklana og við hlupum út og það án þess að loka einu sinni útidyrahurðinni.  Greyið Karen að þurfa að lenda í þessu að horfa upp á bróður sinn og að þurfa að segja okkur þetta líka.  En stelpan stóð sig alveg eins og hetja.  Svo dugleg og sterk og gerði akkúrat það sem hún hefði átt að gera.  Hún leit á bróður sinn og þegar fólk kom til að aðstoða hann þá fór hún strax heim til að láta okkur vita.  Ekki nema ellefu ára og svona rosalega dugleg.  Og þrátt fyrir að hún gréti þá héld hún ró sinni.  En við vorum með hana hjá okkur allan daginn og pössuðum upp á að hún fengi ekki sjokk eftir á.  Við erum líka búin að vera duglega að hrósa henni og tala við hana um þetta allt saman og ég held að eftirköstin verði engin hjá henni.

 

En aftur að Pétri Geir og slysinu.  Á leiðinni á slystað þurfti Arnþór að vera með hausinn út um gluggan á bílnum þar sem rúðan var öll í móðu og að auki var sólin beint í augun á okkur.  Svo hann sá ekkert út.  Hann var líka alla leiðina að segja mér að slaka á, við vissum ekki hvernig staðan væri og við værum alveg að koma.  En hann var alveg jafn skelfdur og ég, hann var kominn út á undan mér, en hann náði samt að vera rólegri.  Slysið gerðis ekki nema svona 1 km í burtu og við eru varla mínútu á leiðinni en mér fannst það vera heil eilífð.  Ég man þegar við beigðum út á vegin og sáum alla bílana stopp í kringum slysstaðinn þá var það samt svo lang í burtu.  Þegar við komum svo til hans lá Pétur Geir vafinn í teppi og sagði; róleg.  Hann var með fulla meðvitund og mér fannst eins og hann vildi bara helst standa upp.  Og guð hvað sjúkrabílinn var lengi á leiðinni.  En nágrannakona okkar sagði mér um kvöldið að hann hefði verið mjög fljótur að koma, svo þetta er mjög afstætt.  Svo þegar þeirloksins komu þá fannst mér sem við færum aldrei af stað.  En sem betur fer var það vegna þess að strákurinn var ekki það mikið slasaður.  Hann er ekkert brotinn en með einn skurð og djúpar skrámur og núna er hann farinn að verða marinn út um allt, á hnéinu, kinnini, mjöðminni, bakinu, lærinu.  Pétur Geir fann reyndar mest fyrir í maganum og vinstri fætinum og strax og við komum upp á sjúkrahús var komið með sónar til að skoða magan á honum, og einnig fótinn.  Svo var hann sendur í sneiðmyndatöku og röngen.  Það kom í ljós að hann var óbrotinn en blæðing í lifrinni.  Það var saumaður saman skurðurinn á fætinum, ekki vel gert og hann mun fá lítið en ljót ör, (það var svo opið sárið). 

 

Hann var settur á gjörgæslu og við vorum þar í einn sólahring.  Þá var Pétur Geir fluttur á barnadeildina.  En með stanslausa vakt.  Hann mátti aldrei vera einn, þannig að ef ég þurfti að skreppa á klósettið þá varð ég að hringja á hjúkrunakonu til að sitja yfir honum á meðan.  Svo á nóttinni þá sat yfir honum hjúkrunarkona þó að ég væri þar líka, en auðvitað er ég sofandi.  Svo loksins á fimmtudag töldu þeir að mesta hættan væri liðin, eða alla vega fannst mér það, því þá gat ég farið fram án þess að hringja á einhvern til að sitja yfir honum og okkur var líka sagt að þá mætti hann fara fram úr og lappa um.  En á fimmtudaginn var okkur líka sagt að þetta væri nú frekar alvarlegt, þetta er æðagúlpur i lifrinni og þeir halda að hann muni samt ekki springa, en samt gúlpur.  Þessi gúlpur er frekar djúpt í lifrinni og þeir vilja vera alveg öruggir að ekkert gerist.  Þeir eru líka búnir að vera annsi duglegir að taka blóð úr honum en það hefur verið gert reglulega á tíma fresti til þar til á fimmtudag en þá var það bara tvisvar á dag.  Og blóðþrýstingurinn hefur verið mældur í honum á fjagra tíma fresti fram á fimmtudag, þá þrisvar á sólahring og svo núna bar tvisvar á dag.  En sem sé á fimmtudeginum var okkur sagt að hann yrði hér þar til á mánudag eða þriðjudag og þyrfti þá að vera heima í 1-2 vikur, og eftir það mætti hann kannski fara í skólann í svona tvo tíma á dag í viku og svo að lengja það smá saman.  En mesta hættan eftir fyrstu vikuna væri fyrstu fjórar vikurnar.  Og svo að þetta yrði ekki komið í lag fyrr en eftir fimm 5 mánuði.  Sem sé engar íþróttir eða hjólahopp og það sem verra er engin slagsmál við stelpurnar.  Rosalega á hann eftir að vera leiðinlegur við þær þennan tíma og guð hvað hann fær að kenna á því þegar þessi tími er liðinn, þær munu njóta þess að hefna sín þegar hann þarf ekki lengur að vera pakkaður inn í bómull.  En það er raunverulega það sem þarf að gera við hann næstu mánuði.  Það gæti verið nóg að reka olbogan í hann til að allt færi af stað og við viljum það ekki.  Svo næstu mánuðir verða skemmtilegir.  Ja, við munum alla vega ekki fara mikið í vetrarfríinu.  En þegar skaðinn var samt ekki alvarlegri en þetta þá er maður þakklátur.

 

En svo í gær, föstudag, kom enn annar læknir sem sagði að við mundum fara heim á morgun, í dag.  Þetta liti allt vel út og allar blóðprufur fínar og allt í lagi.  Svo auðvitað vorum við alveg alsæl yfir því að fara loksins heim, en nei.  Í dag kom svo yfirlæknirinn sem hefur ekki verið á staðnum og hann sagði að hann vildi halda honum inni þar til á mánudag, einnig sagði hann að það væri ekki mikið um svona lifraskaða í Danmörku svo þekkingin á þeim er ekki mikil og því leita þeir til Ameríku og gera eins og þeir gera þar, að halda sjúklingnum á spítala í viku til að fylgjast með og taka fullt af blóðprufum.  Svo þeir vilja vera alveg öruggir.  Sem ég get nú ekki annað en verið þakklát fyrir.  Því ef eitthvað gerist þá erum við á öruggasta staðnum.  Svo við láttum okkur bara hlakka til helgarinnar og bíðum núna eftir að Arnþór og stelpurnar komi í heimsókn til okkar.  Þau ætla að koma með hamborgara og við ætlum að borða saman í fyrsta skiptið í viku.  En núna ætla ég að hætta í bili, ég á eftir að læra brjálæðislega mikið og ég þarf að auki að fara með strákinn í göngutúr.  Oh, og ef þið eruð að pæla þá er ég búin að vera með honum hér síðan á þriðjudagsmorgun, Arnþór tók fyrstu nóttina, og ég fékk líka smá frí á fimmtudaginn þegar Arnþór leysti mig af en hann hefur þurft að vera í skólanum.  En það var auðveldara fyrir mig að missa úr þessa viku og því gerði ég það, eins gæti Arnþór engan veginn sofið í þessum litla bedda svo ég er hér.  En það er líka allt í lagi, ég vil vera hér.

 Stella   

Slys

Á síðasta mánudag vildi svo leiðinlega til að Pétur Geir varð fyrir bíl þegar hann var að hjóla í skólann.  Hann slasaðist ekki mikið, bara einn skurður á hnénu en svolítil innvortis meiðsl.  Hann meiddi sig aðeins í lifrinni og hefur verið á spítalanum út af því.

Hann er mjög lemstraður en ber sig rosalega vel.  Hann var ofboðslega heppinn að slasa sig ekki meir.  Hann fær að koma heim á morgun, en út af þessu slysi höfum við ekki verið neitt að blogga eða gera neitt annað merkilegt.  Strákgreyið má ekki fara í leikfimi í skólanum í 5 mánuði og þarf að vera heima í a.m.k. viku eftir að hann kemur heim.  Eftir það má hann fara í 1 eða 2 tíma í senn.  Hann þarf að taka því rólega og má ekki vera í neinu þar sem högg geta komið á lifrina.

Sem betur fer er vetrarfrí framundan þannig að þetta ætti að vera bærilegt fyrir okkur og hann.

kveðja, Arnþór


Eitthvað smávegis!

Hæ allir saman

 

Klukkan er alveg að verða 12 á miðnætti á föstudagskvöldi.  Ég sit hér í stofunni og horfi á South Park, með öðru auganu, með Pétri Geir.  Síðasta vika er búin að vera allt annað en skemmtileg.  Ég er búin að vera veik alla vikuna, fárveik meira að segja.  Ég gat ekk lyft höfðinu af koddanum í fjóra daga.  Ég held ég hafi bara aldrei verið svona mikið veik svona lengi.  En í gær fór ég loksins af stað, setti í tuttugu þvotta vélar og varð náttúrulega kalt svo að í dag er kvefið komið aftur og aðrar tuttugu vélar af þvotti.

Verst var að krakkarnir byrjuðu í fyrradag og voru öll heima veik í dag.  En sem betur fer er komin helgi og við getum verið heima í rólegheitum.  Við ætlum öll að vera tilbúin til að fara í skólann á mánudaginn.

 

Ég er búin að vera á fullu í allan dag.  Ég er alla vega búin að tæma 6 kassa, setja í 4 kassa, hengja upp myndir og snaga, og korktöflur, ryksuga og moppa, hengja upp þvott, brjóta saman og setja inn í skápa.  Búin að hringja þrisvar til Íslands, fá eitt símtal frá Íslandi, eitt frá Arnþóri til mín og tvö frá mér til hans.  

 

Annars er netfangið okkar að breytast.  Við erum ekki komin með ný en þau gömlu verða óvirk frá og með mánudeginum.  Við erum reyndar með hotmail netföng en við erum ekki viss hvort við munum nota þau eða önnur.  En við látum ykkur vita um helgina.

 

Annars hafa það bara allir “gott”eða þannig Wink.  Nú er líka kominn tími til að koma sér í bælið.  Vonandi hafa allir það gott og eru við góða heilsu.

 

Heyrumst

Stella

P.s.  Nýjar myndir koma inn á morgun. 


Den gamle by og miðaldir

Hæ aftur

 

Laugardagskvöld, sit við sjónvarpið með hálsbólgu og nefrennsli.  Arnþór er í símanum að tala við Snorra frænda, stelpurnar farnar að sofa og Pétur Geir í tölvunni sinni.  Svo hvað á ég annað að gera en blogga.

 

Mig langaði að segja ykkur frá stað sem við fórum á fyrir þremur helgum síðan.  Það er staður sem heitir ,,Den gamle by” og er í Árhúsum.  Þetta er svona eins og Árbæjarsafn bara miklu stærra.  Við fórum þangað einn sunnudaginn og áttum alveg yndislegan dag.  Krökkunum fannst þetta alveg æðislega gaman líka.  Þau fóru í hestvagnaferð sem þeim fannst alveg æðisleg þrátt fyrir að hún hafi bara tekið um 5 mínútur.  En þau voru ánægð.  Það var rosalega gaman að sjá t.d. vinnustofu ljósmyndara, klæðskera og prentara.  Eða leikföngin maður, vá.  Járnsmiður var þar einnig og fólk gekk um klædd í fatnað eins og fólk var í á 18. öld.  Þar fengum við líka þann besta brjóstsyk sem við höfum nokkurn tíma smakkað.  Reyndar erum við á því að þetta sé “must to see” staður fyrir gesti.  Um jólin er víst líka alveg æðislegt að fara þanngað, jólastemming eins og hún var á fyrri öldum.  Við ætlum sko alveg örugglega að fara, vonum bara að við verðum með einhverja gesti sem hægt er að taka með.

 

Svo um seinustu helgi var Miðaldarhátíð í Horsens.  Það var líka rosalega gaman að sjá það.  Fullt af fólki klædd í föt frá þeim tíma og rosalega mikil verslun.  Sko í kringum hátíðina.  Þarna var fólk alstaðar að úr heiminum og allir klæddir upp.  Þetta var virkilega gaman.  Verslunarbásar allstaðar með vörur og mat eins og tíðgaðist á þessum tíma.  Þetta var bara eins og lífstíll hjá sumum.  Það voru meira að segja burtreiðar.  Við erum búin að ákveða að sauma búninga fyrir næsta ár.  Svo við verðum öll klædd eins, til að passa inn í.   LoL  Pétur Geir var svo ánægður með þessi áform okkar, or not.  Sokkabuxurnar höfðuðu ekki beint til hans. Frown LoL

 

Á morgun förum við til Skandeborgar sem er hérna rétt hjá.  Þar er mikill markaður á morgun og við ætlum auðvitað að mæta.  Allar verslanir verða með mikla afslætti og svo er auðvitað flóamarkaður.  Þetta er haldið á aðalgötunni í Skandeborg og mikill fjöldi fólks sækir þennan markað árlega, þetta er í 24. skiptið sem hann er haldinn.  Einnig er í þessari viku í Árhúsum sérstök “Festeuge” sem er nú aðalega ætluð börnum og unglingum.  Það er alltaf eitthvað í gangi.

 

Á sunnudaginn förum við svo í kirkju.  Já, við ætlum í danska kirkju með börnin.  Reyndar gerum við það ekki alveg ótilneydd.  Pétur Geir á að fermast í vor og þetta er byrjunin á fermingarundirbúningnum.  Þetta verður reynsla, jafnvel skemmtileg reynsla.

 

Jú, ég verð nú að segja frá því að fyrir tveimur helgum komu Lauga og Öddi í heimsókn.  Það var æðislegt að fá þau.  Krakkarnir voru rosalega spenntir og þau voru nú ekki neinir englar meðan afi og amma voru hér.  En það var rosalega gott að þau skyldu koma.  Svo er Nonni að koma á mánudaginn og mun gista allavega eina nótt.  Nonni er bróðir Ödda og hefur hann búið í Danmörku í, ja um 10 ár.  Arnþóri hlakkar mikið til og okkur hinum líka, auðvitað.  Það er alltaf gaman að fá gesti.

 

Jæja, ætli þetta sé ekki nóg í bili.  Næst ætla ég aðeins að segja ykkur frá skólanum mínum.  Hann á eftir að vera erfiður.

 

Kveðjur til allra.

 Stella

Skólinn byrjaður.

Jæja, loksins.  Ég er alveg rosalega léleg í þessu bloggi.  En nú ætla ég að skrifa nokkrar línur svona til að uppfæra stöðuna aðeins.

Við erum bæði byrjuð í skólanum og það er bara rosalegt.  Þetta er önnur vikan hans Arnþórs og hann er alveg á fullu í verkefnavinnu.  En það var nú ekki svoleiðis hjá mér.  Fyrsta vikan var seinasta vika og þá var bara skyldufyllerý í skólanum.  Alveg rosalegt.  Það var svokölluð kynningarvika og það er bara klár skemmtun og vitleysa.  En það var alveg rosalega gaman.  Það eru fjórir íslendingar í bekknum, og  þó nokkrir í skólanum.  En aldurskiptingin er nokkuð önnur en ég hefði haldið.  Bara ungt fólk.  Ja, næstum því. 

 

En svo í vikunni byrjaði allt saman á fullu.  Þetta á eftir að vera rosalega erfitt, bækurnar stórar og margar og öll kennsla fer fram í fyrirlestrarformi.  En þó að þetta verði erfitt verður það örugglega gaman.  Svo áfram ég. 

 

Krakkarnir eru líka ánægðir.  Þetta er reyndar erfitt hjá þeim en þau eiga eftir að klára sig.  Karen segist vera farin að skilja sumt og segja eitt og eitt orð í skólanum.  Ég er svo ánægð með það.  Auðvitað er ekkert auðveld að sitja í kennslu og skilja ekki orð.  En ég hef trú á krökkunum mínum, ég veit hvað klár þau eru og dugleg.  Við þurfum bara að fylgjast vel með þeim og hjálpa þeim þegar þess þarf.

Reyndar er fundur á mánudag í skólanum með kennurum þeirra til að ræða hvernig þau hafa það og hvernig gangi.  Það verður gaman að sjá hvað kennararnir segja.

 

Jæja, þetta er nóg í bili.  Reyni að skrifa fljótt aftur.

 Stella

Sitt lítið að hvoru.

Vá, hann á sko að leggja  þetta fyrir sig maðurinn.  Þetta virðist vera honum eðlislegt að blogga svona, og húmorinn maður, ég er búin að liggja hér í krampa við  lesturinn.  Ég ætti bara að hætta þessu og láta hann taka þetta að sér.  Nei, tími því ekki.  En  hann fær að skrifa svona öðru hvoru.

En ég er loksins búin að fá svar frá skólanum, já og auðvitað komst ég inn.  Ég meina; hvað annað?  En nú bíð ég bara eftir að fá að vita hvenær ég byrja og allt þetta en nú er ég sem sagt orðin háskólanemi.  Þetta er nú svolítið skrýtið, ég er sko ekki alveg farin að sjá mig fyrir mér í háskóla en hlakka samt rosalega til.  Þegar við fórum að versla á laugardaginn þá sáum við skólann svo núna veit ég hvar hann er.  Núna þarf ég bara að skoða leiðina frá lestarstöðinni upp í skóla.  Til að sjá hvort ég hjóli þá leið ekki bara.  Við Arnþór ætlum að fara í það þessa viku og einnig að skoða hvernig hann kemst í sinn skóla.  Reyndar stakk hann Pétur Geir upp á því um daginn að við mundum skella okkur til Árhúsa í lest með hjólin og hjóla þar um.  Frábær hugmynd.  En Arnþór á bara ekki hjól.  Það er voðalega vont, en við erum að reyna að finna hjól fyrir hann og ég vona að það gangi.  það er eiginlega nauðsynlegt fyrir hann að vera með hjól líka eins og við.  Það eru allir á hjólum hér.

En það er eitt sem ég hef tekið eftir sem er alveg stórfurðulegt.  Danir ganga um skólausir.  Þeir eru ekki í skóm.  Við tókum fyrst eftir þessu á lestarstöðinni í Árhúsum er við sáum konu í dragt lappa inn skólausa, hún helt ekki einu sinni á skóm.  Síðan þá höfum við séð fullt af fólki, reyndar aðalega konum, lappa um skólausar.  Bæði í miðbæ Árhúsa, í  verslunum og bara alls staðar.  Ég gæti ekki hugsað mér að lappa svona um allt bara á tánum, ætli þetta sé veiki?  Skrítið.

Ég hef annars farið annsi mikið í lest og strætó hér.  Á þessu þremur vikum hef ég farið oftar í strætó hér en ég gerði heima á Íslandi.  En samt ekki þurft að bíða eins lengi eins og ég þurfti alltaf á Íslandi.  Ef ég tók strætó þar var alla vega 20 til 30 mínútna bið en hérna þurfum við varla að bíða.  Reyndar gekk mikið á þegar við krakkarnir fórum ein, ætluðum aldrei að finna strætóstöðina og strætóinn en það tókst á endanum.  En við skemmtum okkur bara mjög vel þennan dag og afmælisbarnið var ánægt með Hannha Montana dótið sitt, svo það var fyrir öllu.  En ég sé samt eftir því að hafa sleppt sundlauginni.  En maður er að reyna að vera smá hagsýnn.  Það er líka margt nauðsynlegra sem okkur vantar en sundlaug.  Eitt af því er sófasett.  Það er ekki þægilegt að sitja í útilegustólum alla daga.  En við þraukum. :)

Klukkan er núna níu að morgni, ég er búin að vera hér niðri í klukkutíma en allir eru sofandi ennþá.  Það rignir, vindurinn er kaldur og engir iðnaðarmenn úti.  Svo það er algjör kyrrð.  Það er þannig á kvöldin hér líka, maður er eins og Palli ein í heiminum.  Það er svo rólegt, eins og að vera í sveit.  En það á nú eftir að breytast þegar fleirri flýtja inn en núna þá njótum við þess bara.

Við vorum reyndar að hugsa um að fara og kaupa gardínur í dag.  Það er svo stórir gluggar í stofunni og eldhúsinu og nauðsynlegt að fá gardínur.  Það verður brjálæðislega heitt þar inni ef við höfum ekkert fyrir gluggunum og ólíft þar inni.  Núna notum við lök en jaa, ekki sérlega hugulegt.

En í heildina séð þá erum við bara ánægð.  Krakkarnir líka.  Þau byrja í skólanum næsta mánudag og þeim hlakkar bara til.  Auðvitað er kvíði líka en það er nú ósköp eðlilegt.  Ég verð að segja ykkur svolítið um stelpurnar mínar.  Núna eru þær með sitt hvort herbergið sem hefur verið draumur þeirra lengi.  Það eru óteljandi tárin og öskrin sem hafa gerst vegna skorts á sitthvoru herberginu og alls konar hótanir hafa flogið á milli þeirra.  En núna þegar draumurinn hefur loksins ræst þá sofa þær samt saman í herbergi.  Fyndið.  Þær hafa aldrei verið einar í herbergi fyrr en nú svo þPær eru algjörlega óvanar og þetta virðist ætla að taka einhvern tíma.  Reyndar fylltist rúmið okkar í fyrrinótt þegar þrumur og eldingar gengu hér yfir, engar smáræðis þrumur.  Pétur Geir kom nú bara til að vekja mig en stelpurnar fóru ekkert aftur (Arnþór svaf þetta allt af sér).  Svo í gærkvöldi kom ekki til greina fyrir sumar að vera einar í herbergi og þær sváfu saman í rúminu hennar Karenar.  Þessi börn, þau eru yndisleg.  Ég heyri reyndar að þær eru vaknaðar núna en ekki komnar niður.

Annars vildi ég þakka ykkur öllum fyrir kveðjurnar.  Það er yndislegt að fá svona kveðjur, að vita að það sé hugsað til manns.  þegar við fáum síma munum við hringja.  En þanngað til bið ég að heilsa ykkur öllum.

Stella

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Arnþór, Stella og Börn í Danmörku

Höfundur

Stella, Arnþór og Börn
Stella, Arnþór og Börn
Við erum að flytja til Danmerkur þar sem við Arnþór erum að fara í nám. Þetta er svo fjölskyldan á Íslandi geti fylgst með því sem er að gerast hjá okkur

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • CIMG7154
  • CIMG7153
  • CIMG7171
  • CIMG7148
  • CIMG7146

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 430

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband